Ísland ennþá taplaust!

Smile


mbl.is Dönum skellt í Linz
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vitleysa!

Ég held að sársaukaþröskuldur almennings hafi verið 25% fyrir virðisaukaskatt og hér er farið 0,5% fram úr því. Þetta er mjög vitlaus ákvörðun og á eftir að koma harkalega í bakið á ríkistjórninni. Ekki nóg með að þetta hækki bæði vöruverð og verðtryggð lán, heldur mun þetta líka hvetja til svartrar atvinnustarfsemi og skattsvika. Þessi breyting er alveg í stíl við alla aðra vitleysu sem kemur frá ríkistjórninni! Ótrúleg vitleysa!
mbl.is Virðisaukaskattur 25,5%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skjaldborg-Gjaldborg!

Þessi skjaldborg er ekkert annað en lygar og svikin loforð! Kosningaloforðinu um Skjaldborg heimilanna var breytt í Gjaldborg um leið og kosningarnar voru afstaðnar! Ennþá hefur EKKERT verið gert fyrir heimilin í landinu og ekki er fyrirsjáanlegt að breyting verði þar á meðan núverandi stjórnarstefna er við lýði. Gjaldborg ríkistjórnarinnar er að setja heimilin í landinu í þrot og hver á þá að borga alla þessa ofurskatta? Stefna ríkistjórnarinnar er eins vitlaus og hugsast getur!


mbl.is Tapað fundið á Alþingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loksins góðar fréttir.

Loksins koma einhverjar jákvæðar og skemmtilegar fréttir. Ég hvet ríkistjórnina að koma þessu í framkvæmd sem allra fyrst svo hægt sé að koma atvinnulífinu kringum vegagerð aftur í gang eftir undanfarinn frostakafla.

Mér líst miklu betur á leið 1, enda virðist vegurinn flæða vel og hafa minni áhrif á umhverfið. Leið 2 virðist aftur á móti vera skítredding og krókaleið, sem mér hugnast ekki.

Koma þessu í útboð sem allra fyrst og hefja framkvæmdir...


mbl.is Selfyssingar ekki lengur í alfaraleið?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fimm sekúndumetrar?

Er tvítugi karlmaðurinn frá Indónesíu fimm sekúndumetrum (sm) lægri en Kösen?

Alþjóðlega mælieiningin fyrir "sentimetra" er táknað með "cm" en ekki "sm". Það er ekki sniðugt að íslenska alþjóðlegar mælieiningar, það getur bara valdið misskilningi!


mbl.is Kösen enn hæsti maður heims
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Illa farið með peningana!

Þetta tónlistarhús er eitt stærsta klúður græðgisvæðingarinnar "2007" og mun vera minnisvarði um hana um ókomin ár!

Útboðsgögn fyrir verkið voru á þá leið að það átti að bjóða heildarpakka að verðmæti 8 milljarða og ætlaði ríkið að borga ákveðna leigu næstu árin og eignast svo húsið að samningstíma liðnum. Undir lokin stóð valið milli tveggja bjóðenda; annar bauð flottan pakka á 8 milljarða samkvæmt útboðsgögnum, en hinn yfirbauð og bauð 12 milljarða pakka! Vegna þess að það var "2007" þá var 12 milljarða pakkanum tekið þótt hann væri síðri. Menn héldu að þeir væru að græða svo mikið!

Í dag hefur allur pakkinn lent á ríkinu og hefur tvöfaldað sig í kostnaði. Það er reyndar alltaf gott að vera vitur eftirá, en það voru margir sem bentu á það á sínum tíma að vitlaust hafi verið valið, enda munu þau mistök nú kosta skattgreiðendur tugi milljarða króna!


mbl.is Tónlistarhúsið kostar 26,5 milljarða króna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

:o)

Þó svo að manni langaði mikið í þennan stóra vinning til að létta á skuldunum þá held ég að hann hafi farið á réttan stað í þetta skiptið. Til hamingju. Smile
mbl.is Einstæð móðir fékk lottóvinninginn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver eru þessi skipulögðu glæpasamtök?

Það hlýtur þá að eiga að banna bankana og stærstu fyrirtæki útrásarvíkinganna...


mbl.is Vilja láta banna skipulögð glæpasamtök
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ICESLAVE!!! :o(

Þá er maður orðinn ICESLAVE!!!  Frown
mbl.is Forsetinn staðfestir Icesave-lög
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kemur ekki á óvart...

... miðað við álagninguna á vörunum hjá N1. Eldsneytisverðið er nógu hátt, en allar rekstarvörur eru svívirðilega háar. T.d. endurnýjaði ég öll ljós á tjaldvagni í sumar fyrir sama verð og eitt afturljós kostaði hjá N1. Verð eru mjög oft 50 til 100% dýrari hjá N1 en t.d. hjá smærri fyrirtækjum sem selja sömu eða svipaðar vörur. Þegar maður hefur ítrekað orðið vitni af þessu okri þá verslar maður ekki hjá N1 nema varan sé ekki til annars staðar.
mbl.is Hagnaður hjá N1
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband